þriðjudagur, mars 23, 2004

ég er búin að flytja bloggið yfir á
blog.central.is/reynivellir

þriðjudagur, mars 09, 2004

Jæja jæja nú er langt um liðið.....
Það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér. Jamm maður er bara búin að kaupa sér hús STELPAN..... á Reynivöllum 5B. Það er rosalega gamalt eða frá 1950. Það er 161,5 fermeter Váá... stórt. Ég og Óli ætlum að skipta þessu í tvær íbúðir og búa væntanlega í efri íbúðinni. Það á eftir að gera rosamikið. Við ætlum að byrja á neðri íbúðinni og hún verður til eftir 2-3 mánuði. Við erum samt flutt inn í eitt herbergið sem við erum búin að græja og gera og er það á eftri hæðinni. Við sváfum fyrst á laugardaginn og það er geggjað að sofa þarna. Það er mjög erfitt að vakna á morgnanna.
.....ég ætlaði að fara á leikritið á föstudaginn en það er uppselt. Ég veit ekki hvort tengdamamma og Kristjana ætli að koma með mér á laugardeginum.... annars fer ég bara á generalprufuna á fimmtudag ÉG Á ENGA VINI.....Húsið er í það lélegu standi að ef ég þarf að pissa þá verð ég að fara á neðri hæðina inn í litla kompu þar sem er klósett(mjög litla kompu) og pissa... svo þarf að ná í fötu fulla af vatni og hella ofan í, mér leyst ekkert á þetta fyrst en þetta er góð tækni. Þannig að ef þið eruð að spá í að koma í heimsókn, VINSAMLEGAST PISSIÐ ÁÐUR!!!!!!!

föstudagur, janúar 30, 2004

Bullandi klíka!!!!!!! á morgun er hin langþráða Pizza-ferð. Ég hlakka mikið til þess að fara en þessa verður alveg rosaleg ferð og óvissan verður allsráðandi eins og allir vita. Það sem á að taka með í ferðina er t.d. vegabréf, landakort af færeyjum, skíðagleraugu og fleira(hvert skildi ferðinni heitið??). Þóra litla, jamm hún er bara komin á fast og maður sér hana valla lengur.... en hún er mætt í skólann gaman gaman. Hildibrandur er að spá í að koma um helgina í sveitina. Ég er búin að vera að skoða mikið sögu stjórnmála á Íslandi og ég er stolt fyrir að vera Íslendingur, viðððð erum svo cool SJÁLFSTÆÐI. Svo er Gunnar á Hlíðarenda mitt goð...fögur er hlíðin. Spakmæli dagsins í dag eru: verið sneplunum um helgina, takið mig til fyrirmyndar.


mánudagur, janúar 26, 2004

Helgin er liðin og ég er búin að næla mér í eina einingu Húrra!!!
En ég er ekki enn þá búin að lenda í þeim aðstæðum að þurfa að nota hæfileika mína í skyndihjálp. Ég var nú bara róleg um helgina en það var svaka stuð í afmælinu hennar Ingu. Stelpurnar fóru á ball og voru ÖMMUR. Bóndadagurinn endaði bara vel, ég og Unnur keyptum pizzu handa gæjunum og svo var skellt sér í pottin eftir á, svo yfirgaf ég pleysið og fór í afmæli. Maður er´bara í áfalli eftir að hafa horft á Idol, þar voru hræðilegir söngvarar...... ég ætla aldrei að syngja í Karoki eða neinu örðu(ég hef vit á því að ég hef lélega rödd). VÁááá verður tekið á því um næstu helgi, óvissuferð(ég veit hvert á að fara hehehehe........ )

föstudagur, janúar 23, 2004

Það er hinn merkilegi bóndadagur í dag, ég ætla að bjóða óla út að borða í kvöld. Þannig ég mæti kannski aðeins of seint í afmælið hennar Ingu..... stelpurar ætla á ball, ég er ekki alveg ákveðin. Óli ætlar að bjóða mér í mat á morgun(hann eldar sjálfur), hvernig ætli að það verði!!!!! Endilega skrifið komment, ég veit samt að ég er ekki góður penni..... en ég ætla að djamma edrú í kvöld, það verður stuð..... það er líka skyldufyllerí hjá mér um næstu helgi Staffaferð
ble ble

Schönes Wochende

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Ég verð að muna það, það er Bóndadagur á morgun...... en því miður ætla ég nú ekki að eyða stórfjármunum, kannski að ég gefi óla blóm og bjóði honum út að borða, kannski fær síðan einhvern óvæntan pakka eftir snæðing. Það er skólaball á morgun og stelpurnar eru að spá í fara. Svo er hún Inga mín að reyna að fá mig á fyllerí en ég held ekki. Annars verð ég bara að blása áfengislykt upp í dúkkur...........á skyndihjálpanámskeiðinu. Jæja þið vitið þá að eftir helgina getið þið treyst á mig ef þið eruð í köfunarvændræðum eða eitthvað í þeim geiranum. Inga ætlar kannski að halda upp á afmælið sitt en það kemur í ljós á morgun....................

mánudagur, janúar 19, 2004

helgin er búin og hún var bara skemmtileg. ÉG VAR EDRÚ. Það var mjög gott að vera edrú og vakna hress daginn eftir, því hann Breki Freyr frændi minn vaknar ágætlega snemma. Hann var algjört krútt :) ég var að vinna á föstudaginn og það var brjálað að gera, sem var bara ágætt því það var rólegt lau. og sun. Það er gott að vita að allir hafi mikla trú á mér, sérstaklega Auður(hún hefur ekki trú á mér í leikritinu) hmmmmmm. Það er alveg ótrúlegt hvað maður er alltaf að spá í því að flytja að heiman, hversu gaman væri það. Bara að búa einn(kannski mætti óli nú búa með mér) og gera hvað sem maður vildi, það yrði yndislegt. Ég er í fríhelgi næst og þá verður ferðinni kannski heitið í úthlíð. Annað hvort með hjónaklúbbnum eða fjölskyldunni á sleða????? maður veit ekki hvað gerist. Endilega kíkið inn á síðurnar sem eru hér á vinsti hönd...... mér finnst samt krúttlegasta síðan með Breka Frey

This page is powered by Blogger. Isn't yours?